Fóðurráðgjöf
Stabbi
STABBI er fóðurráðgjöf - fóðuráætlun fyrir mjólkurkýr þar sem farið er yfir gróffóðurgæði á búinu og fundið út hvaða viðbótarfóður er heppilegt að gefa með út frá þeim markmiðum sem bóndi setur varðandi framleiðslu, nyt og efnainnihald. Áætlanirnar miða af því að uppfylla næringarþarfi gripanna fyrir framleiðslu og með því að tryggja gott heilsufar og frjósemi, á sem hagkvæmastan hátt. Gengið er út frá því að efnagreiningar á gróffóðri liggja fyrir. Einn ráðunautur verður tengiliður við bóndann. Í sameiningu gera þeir áætlun um útfærslu á þjónustunni.

Stabbi
Hvað er innifalið
STABBI er fóðurráðgjöf - fóðuráætlun fyrir mjólkurkýr þar sem farið er yfir gróffóðurgæði á búinu og fundið út hvaða viðbótarfóður er heppilegt að gefa með út frá þeim markmiðum sem bóndi setur varðandi framleiðslu, nyt og efnainnihald.
Sterkari búrekstur með réttum stuðningi
Ráðgjafateymi
Fáðu réttu lausnirnar fyrir þinn búskap – frá kynbótum og fóðrun til jarðræktar og skýrsluhalds. RML styður þig í að byggja upp arðbæran og sjálfbæran búrekstur.
Þörf á ráðgjöf?
Fáðu faglega ráðgjöf fyrir þinn búrekstur
Hvort sem þú ert að hefja búskap, eða þarft ráðgjöf um rekstur og bústjórn, búfé eða jarðrækt — hvert sem þú ert á leiðinni, þá getum við aðstoðað þig í hverju skrefi.

